Ársskýrsla Nefco 2025: Áframhaldandi jákvæð áhrif og traust frammistaða þrátt fyrir alþjóðlega óvissu

Ársskýrslan okkar fyrir árið 2025 sýnir 324 virk verkefni með heildarvirði yfir 560 milljónir evra og jákvæða fjárhagslega niðurstöðu þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður og óvissu á heimsvísu. Verkefnin sem við höfum fjármagnað halda áfram að skapa jákvæð umhverfis- og samfélagsáhrif, sem staðfestir enn á ný getu okkar til að breyta metnaði í aðgerðir.

Ársskýrsla Nefco – Norræna græna bankans – fyrir árið 2025 sýnir fram á áframhaldandi árangur við að hraða grænni umbreytingu, bæði með eigin fjárfestingum og í gegnum sjóði í stýringu. Við höfum náð góðum árangri með því að styðja við vöxt norrænna fyrirtækja, efla græna endurreisn í Úkraínu, stuðla að grænum umskiptum í Moldóvu og fjármagna loftslagsverkefni í Afríku sunnan Sahara.

„Vilji Norðurlanda til áþreifanlegra loftslags- og umhverfisaðgerða er enn sterkur, þrátt fyrir alþjóðlega óvissu og efnahagslegan þrýsting. Nefco er áfram treyst til að umbreyta þessum vilja í raunverulegar niðurstöður,“ segir Trond Moe, forstjóri Nefco.

Í eigu Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, er hlutverk okkar að hraða grænum umskiptum, í takt við framtíðarsýn Norðurlanda sem miðar að því að gera Norðurlönd að sjálfbærasta og samþættasta svæði heims.

Ársskýrsla Nefco samanstendur af ársreikningi og sjálfbærniskýrslu. Að auki birtir Nefco sérstaka skýrslu um siðferðisleg viðmið og hlítni við lög og reglur (Ethics & Compliance Report). Skýrslurnar, sem eru á ensku, má finna hér:

Fjölbreytt verkefni og jákvæð niðurstaða

Í árslok 2025 stýrðum við 324 verkefnum, þar af 69 eigin fjárfestingum að virði 200,5 milljónum evra og 255 verkefnum fjármögnuðum af sjóðum í okkar stýringu, að virði 362,2 milljónum evra. Á árinu greiddum við 77,9 milljónir evra til virkra verkefna en stærstur hluti safnsins fellur undir mótvægisaðgerðir gegn loftslagsbreytingum, m.a. á sviði orku, bygginga, vatnsveitu og úrgangsstjórnunar.

Við árslok nam eigið fé Nefco 149,4 milljónum evra (samanborið við 142,6 milljónir evra árið 2024) og fjármagn í stýringu hafði vaxið í 843 milljónir evra (frá 686 milljónum í lok árs 2024).

Helstu atriði í starfsemi ársins 2025:

  • Stuðningur við vöxt norrænna fyrirtækja: Árið 2025 urðum við fyrsta alþjóðlega fjármálastofnunin til að gera samning við European Investment Fund (EIF) undir InvestEU, um lánaábyrgðir sem auka fjármögnunarmöguleika smárra og meðalstórra fyrirtækja á Norðurlöndum.
  • Græn endurreisn og umskipti í Austur-Evrópu: Við héldum áfram að styðja orkuöryggi og græna endurreisn Úkraínu. Til þessa höfum við safnað yfir 500 milljónum evra frá norrænum og evrópskum aðilum í endurreisnarverkefnið Nefco Green Recovery Programme for Ukraine. Einnig höfum við stutt græn umskipti í Georgíu og Moldóvu með verkefnum sem stuðla að bættri orkunýtingu. Gera má ráð fyrir að um 300.000 aðilar í þessum þremur löndum njóti nú góðs af þeim verkefnum sem lauk á árinu 2025.
  • Hrein orka og eldunartækni: Verkefni sem við stýrum í Afríku sunnan Sahara hafa veitt um 4,5 milljónum manna aðgang að hreinni orku eða eldunartækni (e. modern clean cooking solutions).
  • Heilbrigðara Eystrasalt: Metfjöldi umsókna barst til Baltic Sea Action Plan Fund sem samþykkti átta ný verkefni með það að markmiði að bæta vistkerfi Eystrasaltsins.
  • Samþætting við EU Taxonomy: 80% fjárfestinga Nefco uppfylla skilyrði flokkunarkerfis Evrópusambandsins (EU Taxonomy).

Krefjandi aðstæður og erfitt rekstrarumhverfi

Nefco hefur starfað í Úkraínu í 20 ár og frá innrás Rússa árið 2022 höfum við stutt sveitarfélög til viðgerða og endurbyggingar mikilvægra innviða. Þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður höfum við haldið áfram lykilhlutverki okkar við að ráðstafa fjármagni frá Evrópusambandinu og norrænum stjórnvöldum til grænnar endurreisnar Úkraínu.

„Það sem snertir mig helst er seigla úkraínskra samstarfsaðila. Borgarstjórar og embættismenn halda áfram að skipuleggja til langs tíma, jafnvel þegar borgir þeirra verða fyrir árásum. Þeir skilja að endurreisn snýst ekki aðeins um viðgerðir, heldur umbreytingu – og þeir treysta Nefco til að styðja þá vegferð,“ segir Trond.

Það voru einnig áskoranir í starfi okkar með norrænum fyrirtækjum á árinu, þar sem erfiðar markaðsaðstæður leiddu til aukinna útlánatapa.

„Sum fyrirtæki sem við höfðum trú á lifðu ekki af. Slíkt er sársaukafullt og minnir okkur á að það að fjármagna grænar nýjungar felur í sér raunverulega áhættu. En það er líka alveg skýrt að á þessu sviði gengur sumt upp og annað ekki. Það sem skiptir máli er að við lærum af reynslunni, skerpum áhætturammann okkar og styðjum áfram norræn fyrirtæki með sterkar lausnir og getu til sjálfbærs vaxtar,“ útskýrir Trond.

Sem fyrr, þrátt fyrir erfiðar aðstæður, eru áhrif af fjárfestingum okkar skýr. Norræn fyrirtæki skapa raunverulegan umhverfisárangur, orkunýtni batnar í austur-evrópskum sveitarfélögum og aðgangur að hreinni orku og eldunartækni í Afríku heldur áfram að aukast.

Skýr stefna og trú á því sem koma skal

Árið 2026 markar upphaf nýrrar stefnu fyrir Nefco, en fyrri stefna gilti fyrir árin 2021-2025 – tímabil sem markaðist af miklum breytingum á ytra umhverfi. Engu að síður eru áskoranir tengdar loftslagsbreytingum, mengun, tapi líffræðilegs fjölbreytileika og alþjóðlegrar óvissu enn brýnni en áður.

Á árinu 2025 var fyrri stefna endurskoðuð og mat lagt á þann árangur sem náðst hefur. Sú vinna leiddi til nýs stefnumótunarramma fyrir 2026-2030, sem leggur áherslu á að skapa varanleg áhrif (e. lasting impact) í samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila á Norðurlöndum og nágrannasvæðum, með skýra áherslu á Austur-Evrópu.

„Við höfum skerpt forgangsröðun okkar og áherslur fyrir komandi ár. Niðurstaðan er stefna sem byggir á okkar skýru stöðu sem Norræni græni bankinn, en bregst um leið við nýjum veruleika. Áherslan er skýr: meiri fókus, aukið samstarf og áframhaldandi áhersla á að hafa jákvæð áhrif – hratt, vel og heiðarlega. Þessi vegferð verður ekki auðveld, en ég hef fulla trú á getu okkar til samvinnu, aðgerða og árangurs,“ bætir Trond við.

Á næstu árum munum við halda áfram að setja græna endurreisn Úkraínu í forgang, styðja græn umskipti Moldóvu og efla umhverfisumbætur á Eystrasaltssvæðinu. Þá munum við áfram sinna því lykilhlutverki okkar að styðja vöxt norrænna, grænna fyrirtækja, sem við gerum með markaðsdrifinni nálgun sem miðar að því að styðja fleiri – og stærri – fjárfestingar í norrænum fyrirtækjum.

Lesa meira um stefnuna okkar.

Nánari upplýsingar

Trond Moe, forstjóri Nefco
trond.moe@nefco.int, +358 50 329 0860

Josefin Hoviniemi, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Nefco
josefin.hoviniemi@nefco.int, +358 50 464 6995


Subscribe to our newsletter

Our digital newsletter is being published 4-6 times a year. To stay updated on our projects and activities, sign up here.